Íþrótta- og sýningahöllin hf. (ÍSH) er rekstraraðili Laugardalshallar sem er fjölnota íþrótta-, tónleika- og sýningahöll og telur um 20.000 fermetra. Í Laugardalshöll fer fram daglega fjölbreytt íþróttastarf en í Höllinni eru iðkaðar æfingar í handbolta, körfubolta og blaki og frjálsar íþróttir eru iðkaðar í Frjálsíþróttahöllinni. Einnig er til staðar fyrirmyndaraðstaða í þreksal fyrir iðkendur sem æfa daglega í Laugardalshöll. Árlega heimsækja um 360.000 manns Laugardalshöll í þeim tilgangi aðsækja æfingar eða upplifa viðburði af ýmsum toga.
Bróðurpart hvers árs fer fram skipulögð íþróttastarfsemi á vegum Reykjavíkurborgar (ÍBR/ÍTR) í Laugardalshöllinni, ásamt tilfallandi stórleikjum og stærri íþróttaviðburðum. Flestir landsleikir og stærri íþróttakappleikir landsins sem leiknir eru innanhúss fara fram í Laugardalshöll sem þekkt er fyrir að vera þjóðarleikvangur Íslendinga. Þar fer einnig fram íþróttakennsla á öllum skólastigum, frá barnaskóla til Háskóla.
Aðstaðan í Laugardalshöll er eftirsóknarverð þegar kemur að fjölbreyttu viðburðahaldi af ýmsum toga þar sem Laugardalshöll er flaggskip húsa þegar kemur að tónleikahaldi, ráðstefnum og sýningum, en húsið rúmar allt að 11.000 manns í einu. Aðstaðan er einnig vinsæl þegar kemur að stórum árshátíðum enda stærsta hús sinnar tegundar með fyrirmyndaraðstöðu til veisluhalds fyrir bæði sitjandi borðhald og eða standandi veisluhöld. Forrými og veislusalir sýna engin merki um að íþróttastarf fari fram daglega í sölunum enda hvorki merkingar né auglýsingar að sjá. Salernisaðstaðan er til fyrirmyndar og aðgengi að salernum er mjög góð. Í nærumhverfi Laugardalshallar eru næg bílastæði og mörg hótel eru í göngufæri við Laugardalshöllina svo staðsetningin hentar því afar vel fyrir hina ýmsu viðburði.