Um höllina

Um okkur

Íþrótta- og sýningahöllin (ÍSH) er rekstraraðili Laugardalshallarinnar.

Laugardalshöll er fjölnota íþrótta og sýningahöll og telur um 20.000 fermetra.

Í Laugardalshöll fer fram mjög fjölbreytt íþróttastarf en í Höllinni eru daglega iðkaðar æfingar í handbolta, körfubolta og í blaki og eru frjálsar íþróttir iðkaðar í Frjálsíþróttahöllinni. Einnig er til staðar fyrirmyndaraðstaða í þreksal fyrir iðkendur sem æfa daglega í Laugardalshöll.

Árlega heimsækja um 360.000 manns Laugardalshöll í þeim tilgangi að sækja æfingar eða upplifa viðburði af ýmsum toga.

Bróðurpart hvers árs fer fram skipulögð íþróttastarfsemi á vegum Reykjavíkurborgar (ÍBR/ÍTR) í Laugardalshöllinni, ásamt tilfallandi stórleikjum og stærri íþróttaviðburðum. Flestir landsleikir og stærri íþróttakappleikir landsins sem leiknir eru innanhúss fara fram í Laugardalshöll sem þekkt er fyrir að vera þjóðarleikvangur Íslendinga.

Í Laugardalshöll fer einnig fram mikil og fjölbreytt starfsemi frá morgni til kvölds, allan ársins hring en að auki íþróttaiðkunar á vegum ÍBR/ÍTR fer fram íþróttakennsla á öllum skólastigum, frá barnaskóla til Háskóla.

Aðstaðan í Laugardalshöll er eftirsóknarverð þegar kemur að fjölbreyttu viðburðahaldi af ýmsum toga þar sem Laugardalshöll er flaggskip húsa þegar kemur að tónleikahaldi, ráðstefnum og sýningum, en húsið rúmar allt að 11.000 manns í einu.

Aðstaðan er einnig vinsæl þegar kemur að stórum árshátíðum enda stærsta hús sinnar tegundar með fyrirmyndaraðstöðu til veisluhalds fyrir bæði sitjandi borðhald og eða standandi veisluhöld.

Forrými og veislusalir sýna engin merki um að íþróttastarf fari fram daglega í sölunum enda hvorki merkingar né auglýsingar að sjá.

Salernisaðstaðan er til fyrirmyndar og aðgengi að salernum er mjög góð.

Í nærumhverfi Laugardalshallar eru næg bílastæði og þess bera að geta að mörg hótel eru í göngufæri við Laugardalshöllina og hentar staðsetningin því afar vel fyrir hina ýmsu viðburði.

Heyrðu í okkur ef þig
vantar topp aðstöðu
fyrir viðburð