Íþrótta- og sýningahöllin hf. (ÍSH) tekur skýra afstöðu gegn ofbeldi, mismunun og áreitni af öllu tagi svo sem einelti, kynferðislegri áreitni, kynferðislegu ofbeldi og kynbundinni áreitni. Öll slík framkoma gengur gegn grunngildum starfsemi ÍSH. Mikilvægt er að öllum líði vel í leik og starfi í Laugardalshöll og að sá grundvallarréttur að fá að vera óáreittur, sé virtur.

Hagaðilar í Laugardalshöll eiga að koma í veg fyrir einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni, ofbeldi eða aðra ótilhýðlega hegðun með forvörnum.

ÍSH líður ekki kynþáttamisrétti eða fordóma af hvaða tagi sem er og hvetur alla aðila í Laugardalshöll til að taka ekki undir með þeim sem láta í ljós fordóma og koma fram við aðra eins og við viljum að komið sé fram við okkur.

Samþykkt á stjórnarfundi ÍSH 7. apríl 2026