Íþrótta- og sýningahöllin hf. stuðlar að því að starfsfólk taki siðferðilega ábyrgð á störfum sínum.
Siðareglur ÍSH gilda fyrir allt starfsfólk fyrirtækisins og ber framkvæmdastjóri ábyrgð á framgangi þeirra.
Helstu markmið ÍSH varðandi siðareglur eru:
- Fyrirtækið veitir viðskiptavinum sínum kurteislega og áreiðanlega þjónustu.
- Fyrirtækið virðir og viðheldur trúnaði og þagmælsku gagnvart viðskiptavinum.
- Fyrirtækið hefur að leiðarljósi fagmennsku, heiðarleika og sanngirni í öllum samskiptum og viðskiptum.
- Fyrirtækið sýnir öllum viðskiptavinum sömu virðingu og tillitssemi óháð t.d. kyni, uppruna, menningu, kynhneigð, trú, aldri, þjóðfélagsstöðu og líkamlegu atgervi.
- Fyrirtækið tryggir að allar upplýsingar til viðskiptavina séu réttar.
- Fyrirtækið verðleggur vörur og þjónustu með skýrum hætti og í samræmi við gildandi gjaldskrá.
- Fyrirtækið leitast við að svara öllum fyrirspurnum og óskum á faglegan og skilvirkan hátt.
- Fyrirtækið tryggir sanngjörn og skjót viðbrögð við kvörtunum.
- Fyrirtækið hefur í heiðri öll lög og reglur varðandi reksturinn og fylgir þeim eftir.
- Fyrirtækið tryggir að faglega sé staðið að bókhaldi og reikningsskilum.
- Fyrirtækið uppfyllir allar skyldur við starfsmenn með því að fara að lögum og gildandi kjarasamningum.
- Fyrirtækið sér til þess að starfsfólk fái viðeigandi þjálfun og fræðslu og að vinnuskilyrði séu við hæfi.
- Fyrirtækið tryggir öryggi starfsmanna og viðskiptavina með faglegum starfsháttum, góðri aðstöðu og viðurkenndum búnaði.
- Fyrirtækið sýnir í verki ábyrgð gagnvart umhverfi og samfélagi.
Siðareglur samþykktar á stjórnarfundi 27. apríl 2023