Markmið og skilgreining
Markmið þessara reglna er að skilgreina það hátterni og viðmót sem ætlast er til að fulltrúar stjórnar ÍSH sýni af sér við störf sín í stjórn ÍSH.
Starfsskyldur kjörinna fulltrúa
Fulltrúar í stjórn ÍSH skulu í störfum sínum fylgja lögum og starfsreglum stjórnar ÍSH, sem og sannfæringu sinni. Þeim ber að gæta hagsmuna eigenda og hagsmuna ÍSH. Þeir skuli í störfum sínum og í umræðu um málefni ÍSH stuðla að og viðhalda orð og athafnir sem samrýmast góðum
mannlegum samskiptum.
Fulltrúar í stjórn ÍSH hafa ávallt í heiðri grundvallarreglur góðrar stjórnsýslu í störfum sínum þ.m.t. gagnsæja og upplýsta ákvarðanatöku og framkvæma ekkert það sem er til þess fallið að verkja grunsemdir um að annað en lögmæt og málefnaleg sjónarmið ráði för við stjórn ÍSH.
Fulltrúum ber að starfa af kostgæfni, fyrir opnum tjöldum og vera reiðubúnir að rökstyðja ákvarðanir sínar og tilgreina á hverju þær eru byggðar.
Valdmörk
Fulltrúar í stjórn gæta þess að fara ekki út fyrir umboð sitt í störfum sínum og virða verkaskiptingu í stjórnkerfi ÍSH. Þeir sýna störfum og réttindum annarra kjörinna fulltrúa í stjórn og starfsmanna ÍSH virðingu.
Hagsmunaárekstrar
Fulltrúar í stjórn ÍSH nýta sér ekki stöðu sína í þágu einkahagsmuna sinna eða annarra sem eru þeim tengdir, hvort sem ávinningur af slíku kemur fram strax eða síðar, þ.m.t. eftir að störfum fyrir ÍSH lýkur.
Fulltrúar í stjórn ÍSH skulu forðast hagsmunaárekstra í störfum sínum.
Gjafir og fríðindi
Fulltrúar í stjórn þiggja ekki gjafir, fríðindi eða önnur hlunnindi frá viðskiptavinum eða þeim sem leita eftir eða veita ÍSH þjónustu. Í störfum sínum skal stjórnarfulltrúi forðast alla hegðum sem gæti talist fela í sér að veita eða þiggja óeðlilega fyrirgreiðslu eða mútur.
Upplýsingagjöf og trúnaður
Fulltrúar í stjórn ÍSH gæta þagnarskyldu um það sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einkahagsmuna eða almannahagsmuna samkvæmt lögum og eðli máls.
Trúnaðurinn helst áfram eftir að fulltrúar láta af störfum.
Fulltrúar í stjórn ÍSH virða trúnað um ummæli einstakra fundarmanna á fundum stjórnar ÍSH sem og um innihald skjala eða annarra gagna, sem þeir fá aðgang að vegna starfa sinna og trúnaðar skal vera um, enda byggi hann á lögmætum og málefnalegum rökum.
Að virða hlutverk starfsmanna
Fulltrúar í stjórn ÍSH skulu í störfum sínum virða hlutverk starfsmanna ÍSH. Þeir mega ekki hlutast til um að starfsmenn geri neitt það sem hefur þann tilgang að verða kjörnum fulltrúa á beinan eða óbeinan hátt til hugsanlegra ávinnings, né heldur aðila nátengdum honum eða ákveðnum hópum eða fyrirtækjum.
Stöðuveitingar
Fulltrúi í stjórn ÍSH skal ekki gera neitt sem veitir honum sjálfum starfslegan ávinning í framtíðinni eftir að hann hefur látið að störfum stjórnarmanns.
Fulltrúi í stjórn ÍSH ber að koma í veg fyrir að einstaklingum sé veitt starf eða stöðuhækkun hjá ÍSH á öðrum forsendum en hæfni til að sækja starfið og gæta þess, þegar þeir koma sjálfir að ákvörðun um val á starfsmönnum, að hæfasti umsækjandinn hljóti starfið.
Miðlun siðareglna til stjórnarmanna
Fulltrúar í stjórn ÍSH undirgangast þessar siðareglur með undirskrift sinni og lýsa því þar með yfir að þeir ætli að hafa þær að leiðarljósi. Siðareglurnar skulu verða aðgengilegar á þann hátt sem stjórn ákveður til að þessir aðilar geti gert sér grein fyrir meginreglum þeirra.
Samþykkt á fundi stjórnar Íþrótta-og sýningarhallarinnar hf. 26.ágúst 2025